|
Var að skrifast á við vin minn og væla undan sjálfum mér. Bútur af svarinu er hér, mér finnst þetta ansi gott: Æ, kallgarmurinn. Hugur minn er allur hjá þér. Nema reyndar litli-heilinn: hann er að velta fyrir sér þessum furðulegu Íslendingum sem þykjast ekkert klám vilja (hvað voru þeir að gera dagana sem einhver lélegasta klámmynd allra tíma, af Gumma í bdsm, var á netinu?). Hvar er fegurðarskyn þessarar þjóðar? Svo koma menn ekki auga á tækifærin í þessu, þótt hér sé geipað grimmt um upplýsinga- og þekkingariðnað. Er ekki klámið hans langstærsta svið? Idjótar. Það væri líka fín landkynning að láta taka upp nokkrar sætar senur við Geysi og Gullfoss (það er nú ekkert minilibido í þeim náttúruperlum), svo ekki sé nú minnst á hópreið á Þingvöllum. |
| Leave a Comment: |