Entry: Starfsmannaleiga 3.3.07



Hjá þjóð sem úthýsir ráðstefnu klámframleiðenda, þykir mér svolítið undarlegt að geta samþykkt þó ekki væri nema orðið: "Starfsmannaleiga."  Eru starfsmenn sumsé eitthvað sem hægt er að láta ganga kaupum og sölum svona eins og hvern annan smóking eða bíl?  Eru starfsmenn eitthvað sem hægt er að láta höndla með og það fullkomlega löglega?  Af hverju eru þá ekki til hlutir á borð við kvennaleigur, mannaleigur, fjölskylduleigur?  Hvað kallar maður melludólg og hvað kallar maður vændi í þessu samhengi?  Hvernig er hægt að réttlæta það að selja fólk á einn hátt en ekki annan?  Og ef einhver vogar sér að segja að það sé allt í lagi að reka starsmannaleigu, vegna þess að þetta sé gert fyrir þá sem vilja vinna fyrir sér og að þannig geti þeir haft það betra en heima hjá sér, þá má hinn sami rökstyðja vændisrekstur.  Hver er munurinn á vændishúsi og starfsmannaleigu?  Einhverjir karlpungar misnota sér eymd annarra til þess að græða peninga.  Og réttlæta það með því að segja að þeir séu að gera öllum gott.   Dýpra verður varla sokkið í hræsninni.  Er nema von að manni blöskri stundum?

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments