Átti merkilegan dag í dag, sem er ekki nærri lokið. Byrjaði með því að Steinar fór í vinnuna og ég hugsaði mér gott til glóðarinnar að liggja uppi í rúmi til hádegis, skrölta svo niður í skóla um tvöleytið þegar ég væri búinn að þýða viðtal sem ég og Steinar tókum í gær úr frönsku og senda með flugi. Rétt þar á eftir kom brúna tíkin sem hefur allt gert vitlaust hér síðan hún fór að opna útidyrnar með loppunum til þess að hleypa hundinum okkar, honum Elvis, í slkemmtilega leiki. Elvis lullaði út, sem ég var ekki sáttur við, liggjandi uppi í rúmi og viljandi hafa það náðugt. Ég heyrði meiriháttar ýfur og gelt í garðinum og þá eru þar samankomin í einhverri misskilinni morgungleði, brúna tíkin og (h)undur nágrannans en þeir Elvis eru ekki bestu vinir í veröldinni. Ég skrölti niður á hækjunni og leit út um stofugluggann og þá voru þeir óvinirnir að bítast á af miklum móð. Þetta voru svona ruddaleg slagsmál þar sem nágranninn beit Elvis af offorsi hér og þar um líkamann og Elvis hélt sínu af heimskulegri þrjósku. Ég sá að við svo búið mátti ekki standa, hljóp (haha) upp og náði mér í buxur og arkaði síðan út, berfættur, ber að ofan, úfinn og tætingslegur, með hækjuna til að ná í hundfíflið. Dýrin þurftu náttúrulega að láta hafa fyrir sér, þannig að ég elti þá í kringum hús nágrannans, endanlega lítandi út eins og alvarlega geðsjúkur maður, náði þeim á bílaplaninu hjá tannlæknastofunni, lamdi þá í sundur með hækjunni þar til nágrannahundurinn stakk af. Þá þurftir ég að draga Elvis heim, alblóðugan og útslefaðan og ekki færan um gang. Þetta gjörði ég sumsé í mínu ástandi, á hækjunni, ber að ofan, úfinn og eins og ég veit ekki hvað, um garð nágrannanna, heim og inn. Þar var Sölvi að skrölta á fætur og á leið í skólann. Ég dröslaði hundinum upp og í bað, þar sem hann var ekkert sérstaklega fallegur eftir átökin. Sölvi fór í skólann og ég hugsaði með mér að ég ætti kannski að fara með hundinn til læknis, en þegar ég heyrði að hann var kominn að útidyrunum að ýlfra á hundtíkina brúnu, til í slaginn aftur, þá gaf ég skít í hann og ætlaði að leggjast. Þá mundi ég að ég átti eftir að þýða viðtalið, sem við Steinar tókum í Valaskjálf í gær og senda spóluna suður. Þannig að ég settist við tölvuna og byrjaði. Svo var ég rétt um það bil að byrja á pistlinum sem ég ætlaði að skrifa fyrir RÚV og Austurgluggann um sömu sýningu, þegar ég var beðinn um að skreppa í Lagarfellsvirkjun að taka myndir. Sem ég og gerði og ók alveg á nítíu á staðinn, myndaði og ók alveg á nítíu til baka (eða sjötíu eða fimmtíu) og beint í prófsýningu í ME. Svo skaust ég í kauffélagið, náði í Steinar og fór með hann í Sentrúm þar sem hann var á meðan ég var í Flisabúðinni að kaupa gólfefni (þetta skilja bara innvígðir), náði svo í drenginn, keyrði hann heim, eldaði og sá svo á eftir báðum sonum mínum eftir matinn fara á skrall á meðan ég lá uppi í sófa að horfa á sjónvarpið og bora í nefið. Blessunarlega eru gólfefnin þokkalega góð. Jahérnahér. Og Lóa í Noregi þessa viku og næstu. Ussubía. Svo að lokum þá mæli eg með tónleikaalbúmi Roger Waters In the flesh. Alveg dúndur. Skál.
7 comments
yourshop.cc December 4, 2008 07:03 AM PST http://www.watchesforsale.us
DrSiggi June 5, 2007 02:56 AM PDT Elsku Kristín, gott að þetta virkaði. Enda frábært ljóðskáld, hann Bonnefoy. Og Esther og Aldís, það er löngu kominn tími á að skoða gólfefni saman. Mæli með því að gera slíkt með Kristínu.
Esther June 3, 2007 10:38 PM PDT Sigurður, hvernig er þetta eiginlega? Hefurðu enga stjórn á þessum villidýrum þínum?
Tek annars undir með Aldísi. Þessi gólfefni verður að grandskoða ásamt einni flösku af rauðu eða hvítu, við fyrsta tækifæri.
Kristín í París June 2, 2007 11:16 PM PDT Fyrsti upplestur þýðingar gekk vel. Allir ánægðir. Þú átt Calvados inni hjá mér og eins gott að rukka mig reglulega. KKK.
Aldísin.. May 27, 2007 10:49 PM PDT Ástandið á ykkur þarna.. ég verð greinilega að fara að koma heim og sjá þessi gólfefni.. já ég hlakka til!!
DrSiggi May 24, 2007 10:28 PM PDT Ég hefði nú helst viljað hafa áhorfendur, þetta var rosalega flott efni í leikrit!
Þráinn May 21, 2007 03:57 PM PDT Ég hefði svo viljað ná mynd af þér og hundunum:D