|
Ekki þar fyrir. Fólk á væntanlega margfalt flóknara líf en ég og örugglega bloggvænna. En hva? Búinn að fara suður að vinna á fréttastofu Stöðvar2 eina helgi, búinn að fara suður til Gevlavígurs að halda eina sýningu með Lóu. Það var reyndar fullkomlega manísk ferð. Lögðum af stað í flugi strax eftir kennslu á þriðjudegi, náðum í bílaleigubíl í Reykjavík og brenndum til Keflavíkur þar sem við tókum upp myndirnar hennar Lóu og hengdum upp til að verða ellefu. Brenndum svo til Reykjavíkur og keyptum okkur Subway og fórum með samlokurnar á hótelið. Ég fékk mér örlítð koníak. Um morguninn fórum við í morgunmat og hittum svo Sillu sem er að vinna í bókinni okkar. Svo brenndum við tl Keflavíkur og sátum jafnréttisráðstefnu sem endaði á því að ég las upp úr sonnettusveignum mínum sem ég vonast til að komi út fyrir jól. Fórum síðan eftir rauðvín og notalegheit til hennar Rutar systur minnar og átum þar og höfðum notalegt. Og svo um morguninn brenndum við til Reykjavíkur og náðum flugi heim. Ég náði að kenna klukkan tíu og svo að vinna eins og venjulega til um það bil fimm.
"So it goes." Sá sem veit hvaðan þessi tilvitnun er má óska sér. |
| DrSciggi November 18, 2007 01:26 AM PST Bravó Bryn. Gaman að sjá frá þér komment, Það þýðir að ég fer að lufsast til að blogga meira! Bisous!!! | ||
| Bryn November 13, 2007 08:45 AM PST Tel það vera úr Slaughterhouse five Hissa að enginn bókanördanna í kringum þig hafi ekki svarað fyrr. Vona að þið náið andanum á öllum þessum hlaupum. Bisous | ||
| Leave a Comment: |